Gerrard vill sama leik og gegn Sunderland

Steven Gerrard verður í eldlínunni í kvöld gegn Benfica.
Steven Gerrard verður í eldlínunni í kvöld gegn Benfica. Reuters

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool vonast til liðið nái að spila með sama hætti og það gerði gegn Sunderland um síðustu helgi þegar liðið etur kappi við Benfica í fyrri viðureigninni í átta liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í kvöld.

Liverpool sýndi allar sínar bestu hliðar í leiknum við Sunderland og fór með sigur af hólmi, 3:0, en Gerrard og félagar hans fá eflaust meiri mótspyrnu í Portúgal í kvöld.

,,Það sem sást á sunnudaginn voru 11 leikmenn sem knattspyrnustjórinn valdi til hefja leik og þessir leikmenn náðu vel saman sem skilaði sér með afar góðum leik. Þegar eitthvað þessu líkt gerist þá er von á góðu eins og úrslitin báru með sér. Nú verðum bara að endurtaka leikinn í leiknum við Benfica,“ segir fyrirliðinn.

Ítalinn Alberto Aquilanier meiddur og fór með Liverpool-liðinu til Portúgal en að öðru leyti getur Rafael Benítez teflt fram sínu sterkasta liði.








mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert