Hargreaves hugsanlega í hópnum gegn Chelsea

Owen Hargreaves fagnar marki með United.
Owen Hargreaves fagnar marki með United. Reuters

Owen Hargreaves og John O'Shea verða hugsanlega í leikmannahópi Manchester United á morgun þegar liðið tekur á móti Chelsea í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar.

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United sagði við fréttamenn í morgun að hann væri að íhuga að velja þá báða í hópinn. Hargreaves hefur ekki leikið með aðalliði United síðan í september 2008 og O'Shea hefur verið frá vegna meiðsla síðan í nóvember.

John O'Shea og Owen Hargreaves hafa æft mjög vel með aðalliðinu. Þeir eru ekki langt frá því að vera leikfærir og það gæti farið svo að ég veldi annan þeirra í hópinn sem mætir Chelsea. Ef ég vel einn á morgun og annan á miðvikudaginn þá gefur það þeim sjálfstraust og þeir þurfa á því að halda,“ sagði Ferguson.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert