Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool segist þurfa að fá 60 milljónir punda til að kaupa þrjá heimsklassa leikmenn til að Liverpool eigi möguleika á að vinna Englandsmeistaratitilinn.
Liverpool ætlaði sér að gera atlögu að titlinum í ár en ekki hefur Livepool-mönnum gengið sem skildi. Liðið er í sjötta sæti, 19 stigum á eftir forystusauðunum í Chelsea þegar fimm umferðir eru eftir.
,,Verð á topp leikmann er eitthvað í kringum 20 milljónir punda og ég held að við þurfum þrjá slíka. Ég held að við getum bætt okkur en það veltur á því að við getum keypt réttu mennina og það er alltaf auðveldara að kaupa fleiri leikmenn með meiri peningunum,“ segir Benítez en hans menn taka á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.