Owen Coyle knattspyrnustjóri Bolton er óhress með ummæli Alex Ferguson, stjóra Manchester United, sem sagði eftir leik sinna manna gegn Blackburn í gær að Chelsea ætti í vændum auðveldan leik gegn Bolton annað kvöld.
,,Við eigum líflínu ef Chelsea misstígur sinn en í mínum augum á Chelsea auðveldan leik gegn Bolton á þriðjudaginn,“ sagði Ferguson eftir markalausa jafntefli sinna manna gegn Blackburn í gær.
,,Þetta er hans skoðun en ég mun einblína hvað við getum gert en ekki á hvað einhver annar segir,“ sagði Coyle en Bolton er enn í bullandi fallbaráttu. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og er í 15. sæti, fimm stigum frá fallsæti.