Van Persie í leikmannahópi Arsenal gegn Tottenham

Robin Van Persie.
Robin Van Persie. Reuters

Robin van Persie verður í leikmannahópi Arsenal annað kvöld þegar liðið sækir granna sína og erkifjendur í Tottenham heim á White Hart Lane.

Hollenski sóknarmaðurinn hefur verið frá keppni síðustu fimm mánaðina vegna meiðsla í ökkla en Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal upplýsti á fréttamannafundi í dag að hann hefði varið Persie í leikmannahópinn.

Með sigri gegn Tottenham kemst Arsenal uppfyrir Manchester United í annað sæti deildarinnar.



 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert