Davies sektaður fyrir að gagnrýna dómara

Kevin Davies sagði Mark Clattenburg til syndanna.
Kevin Davies sagði Mark Clattenburg til syndanna. Reuters

Kevin Davies, sóknarmaður Bolton, hefur verið sektaður fyrir ummæli sín í garð Marks Clattenburgs dómara eftir leik liðsins við Fulham í febrúar.

Sektin nemur 7.500 pundum og er skilorðsbundin þannig að hún fellur niður eftir tvö ár ef Davies heldur sig á mottunni til þess tíma.

Davies taldi sig hafa tryggt Bolton sigur þegar hann skoraði seint í leiknum en Clattenburg dæmdi markið af þar sem hann taldi að brotið hefði verið á Brede Hangeland, varnarmanni Fulham. Davies vandaði honum ekki kveðjurnar í viðtölum eftir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert