Gunnar Heiðar Þorvaldsson lét enn að sér kveða með varaliði enska 1. deildarliðsins Reading í dag. Hann lagði upp sigurmarkið gegn Plymouth, 1:0.
Þar að auki var Gunnar mjög áberandi í framlínu Reading og var óheppinn að skora ekki í tvígang en hann hafði gert þrjú mörk í næstu tveimur leikjum á undan. Frammistaða Gunnars með varaliðinu hefur þó ekki fleytt honum inní aðalliðshóp Reading en Eyjamaðurinn, sem er í láni frá Esbjerg í Danmörku, hefur ekki fengið tækifæri þar undanfarnar vikur.