Wayne Rooney hefur biðlað til forráðamanna Manchester United að félagið kaupi öflugan framherja í sumar. Rooney hefur dregið vagninn í sóknarleik liðsins og er langmarkahæsti leikmaður liðsins með 34 mörk.
,,Ef við getum fengið tvo topp leikmenn í sumar þá gefur það okkur góða möguleika á að vinna titilinn aftur ef Chelsea vinnur. Ef litið er á liðið sem vann þrefalt 1999 þá vorum við með fjóra framherja sem allir voru færir um að skora. Núna er það ég, Berbatov og Michael Owen. Við höfum líka Macheda en ef við fengjum til okkar einn topp framherja yrðum við með rétt jafnvægi í liðinu,“ segir Rooney við enska blaðið The Peoble í dag.
Rooney verður í eldlínunni með Manchester United gegn Stoke á Old Trafford í dag en þá fer fram lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni.