Arsenal er á höttunum eftir ástralska markverðinum Mark Schwarzer ef marka má frétt í netútgáfu enska blaðsins The Times. Schwarzer, sem er 37 ára gamall, er á mála hjá Fulham en Arsene Wenger vill fá nýjan markvörð á Emirates fyrir næsta tímabil.
Markverðir Arsenal-liðsins, Spánverjinn Manuel Almunia og Pólverjinn Lukasz Fabianski, gerðu sig seka um töluvert af mistökum þegar þeir stóðu á milli stanganna í marki Lundúnaliðsins á nýafstöðnu tímabili og hefur Wenger verið að svipast um eftir markverði.
Hann er sagður hafa áhuga á að semja við Schwarzer sem hefur staðið sig afar vel með Fulham en liðið kom mjög á óvart og komst alla leið í úrslit Evrópudeildar UEFA þar sem liðið tapaði fyrir Atletico Madrid í framlengdum úrslitaleik.