Steven Gerrard fyrirliði Englands gat ekki neitað því að frammistaða liðsins var slök, gegn Alsír á HM í Suður-Afríku í kvöld, þegar hann ræddi við sjónvarpsmenn skömmu eftir að leikurinn var flautaður af.
„Við vorum ekki nógu góðir. Við þurfum að bæta okkur ef við ætlum okkur að komast langt í þessari keppni. Það vantaði talsvert upp á hjá okkur á fremsta þriðjungi vallarins,“ sagði Gerrard eftir 0:0 jafntefli gegn Alsír en England hefur tvö stig eftir að hafa gert jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum.