Heill bílfarmaður af brasilískum knattspyrnumönnum er á leiðinni til Leeds United þar sem þeir verða til reynslu. Um sjö leikmenn er að ræða að sögn Ken Bates stjórnarmanns Leeds en sem kunnugt er vann þetta gamla stórveldi sér sæti í ensku 1. deildinni í vor.
,,Það koma til okkar sjö Brasilíumenn í júlí. Þeir hafa allir spilað með sterkum liðum í Evrópu,“ sagði Bates við útvarpsstöðina Yorkshire Radio.
Leeds hefur þegar keypt fjóra leikmenn í sumar, markvörðinn Kasper Schmeichel, varnarmennina Federico Bessone og Paul Connolly og framherjann Billu Paynter.