Arsenal tilkynnti í dag um kaup á franska varnarmanninum Laurent Koscielny. Hann kemur til Lundúnaliðsins frá franska liðinu Lorient. Koscielny er 24 ára gamall sem leikur í stöðu miðvarðar.
,,Koscielny er miðvörður sem hefur mikla hæfileika og stóð sig afar vel með Lorient á síðustu leiktíð. Hann er sterkur og fljótur og hann er afar góð viðbót í okkar hóp,“ segir Arsene Wenger á vef Arsenal.
,,Ég er mjög spenntur að koma til Arsenal. Þetta er eitt stærsta félagið í Evrópu sem hefur marga frábæra leikmenn í sínum röðum,“ sagði Koscielny, sem verður í treyju númer 6.