Eiður orðaður við Fulham á ný

Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Tottenham.
Eiður Smári Guðjohnsen í leik með Tottenham. Reuters

Enska knattspyrnufélagið Fulham hefur ekki gefið upp vonina um að krækja í Eið Smára Guðjohnsen fyrir næsta keppnistímabil, samkvæmt frétt í News of the World í dag.

Blaðið segir að þar sem Tottenham sé ekki enn búið að ganga frá málum varðandi Eið, með að fá hann lánaðan aftur frá Mónakó eða kaupa hann þaðan, sjái Fulham tækifæri til að fá hann til liðs við sig.

Fram kemur að af Eiðs hálfu sé sem fyrr mestur áhugi fyrir því að leika áfram með Tottenham.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert