Ferguson: England þarf vetrarfrí

Sir Alex Ferguson bindur miklar vonir við Wayne Rooney.
Sir Alex Ferguson bindur miklar vonir við Wayne Rooney. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir í ítarlegu viðtali við ESPN að það sé nauðsynlegt fyrir enska knattspyrnusambandið að taka upp vetrarfrí líkt og tíðkast hjá mörgum þjóðum, eigi enska landsliðið að geta náð betri árangri á stórmótum.

„Enska knattspyrnusambandið þarf að gera landsliði sínu kleyft að ná fram sínu besta á HM, og nú þegar leikurinn er orðinn eins og hann er og sjónvarpsstöðvar gera kröfur um fjölda leikja í hverri viku, er tímabært að taka upp vetrarfrí eins og ég hef talað um síðan fyrir 30 árum í Skotlandi. Menn verða að gera sér grein fyrir því að aðrar þjóðir hafa forskot að þessu leyti,“ sagði Ferguson, sem ræddi einnig um sína helstu stjörnu hjá United, Wayne Rooney, en hann stóð ekki undir væntingum á HM.

„Hann bætti sig talsvert á síðustu leiktíð hvað varðar tímasetningar og hreyfingar í vítateignum. Hann færði okkur yfir 30 mörk og ef hann gerir það aftur, og bætir kannski aðeins við sinn leik, þá er hann að gera einmitt það sem við ætlumst til,“ sagði Ferguson.

„Það búa gríðarlegir hæfileikar í drengnum og við verðum að bíða eftir að þeir nái allir að koma fram. Við reynum að þjálfa hann og leiðbeina honum en mikilvægast er að hann nái fullum þroska sem leikmaður. Þegar það tekst verður hann orðinn að hinum fullkomna knattspyrnumanni,“ bætti Skotinn við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert