Benfica samþykkti tilboð Chelsea í Ramires

Ramires í leik gegn Chile á HM í sumar.
Ramires í leik gegn Chile á HM í sumar. Reuters

Portúgalsmeistarar Benfica og Englandsmeistarar Chelsea hafa komist að samkomulagi um kaupverð brasilíska miðjumannsins Ramires sem stóð sig vel með Brasilíu á HM í Suður-Afríku í sumar.

Þetta staðfesti Benfica með tilkynningu í dag. Chelsea á því aðeins eftir að semja við Ramires sjálfan um kaup og kjör, en það ætti að vera aðeins formsatriði því hann hefur lýst yfir áhuga á að koma til Lundúnafélagsins.

Talið er að Chelsea greiði 22 milljónir evra fyrir þennan 23 ára gamla leikmann, en það jafngildir tæplega 3,5 milljörðum íslenskra króna á núverandi gengi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert