Carrick frá keppni næstu vikurnar

Michael Carrick með Manchester United á síðustu leiktíð.
Michael Carrick með Manchester United á síðustu leiktíð. Reuters

Michael Carrick miðjuleikmaður Manchester United missir af byrjun tímabilsins vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leik United gegn úrvalsliði írsku deildarinnar í fyrrakvöld.

Carrick haltraði af velli í fyrri hálfleik og að sögn Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóra Manchester-liðsins verður Carrick frá keppni næstu vikurnar. 

Manchester United mætir Chelsea í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn á Wembley á sunnudaginn og mætir síðan Newcastle í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 16. þessa mánaðar.


 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert