Liverpool og Barcelona hafa náð samkomulagi

Javier Mascherano.
Javier Mascherano. Reuters

Spænskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Barcelona hafi náð samkomulagi við Liverpool um kaup á argentínska landsliðsmanninum Javier Mascherano. Það er með ekkert því til fyrirstöðu að miðjumaðurinn sterki gangi í raðir Spánarmeistaranna sem lætur Liverpool fá Hvít-Rússann Aliaksandr Hleb í staðinn.

Fregnir herma að Barcelona muni greiða 15 milljónir evra fyrir Mascherano, 2,3 milljarða króna, og Liverpool fær að auki miðjumanninn Aliaksandr Hleb sem var í láni hjá Stuttgart á síðustu leiktíð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert