Ramires búinn að skrifa undir hjá Chelsea

Ramires í leik með Brasilíumönnum á HM.
Ramires í leik með Brasilíumönnum á HM. Reuters

Englandsmeistarar Chelsea gengu nú síðdegis frá kaupum á brasilíska miðvallarleikmanninum Ramires. Hann kemur til meistaranna frá portúgalska liðinu Benfica og greiðir Chelsea um 17 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Ramires, sem er 23 ára gamall, skrifaði undir fjögurra ára samning við Lundúnaliðið og verður því eflaust öflugur liðsstyrkur.

,,Allir leikmenn í heimi myndu elska það að fá tækifæri til að spila fyrir Chelsea og ég fæ þetta frábæra tækifæri. Ég mun gera mitt besta til að gjalda félaginu fyrir tækifærið sem það veitir mér og ég er alveg í sjöunda himni,“ segir Brasilíumaðurinn á vef Chelsea.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert