Liverpool hyggst áfrýja rauða spjaldinu hjá Cole

Joe Cole er hér rekinn af velli.
Joe Cole er hér rekinn af velli. Reuters

Liverpool ætlar að áfrýja rauða spjaldinu sem Joe Cole fékk að líta á í viðureign Liverpool og Arsenal í dag. Cole var rekinn af velli fyrir brot undir lok leiksins og er þetta fyrsta brottvísun miðjumannsins snjalla á ferlinum.

Cole á yfir höfði sér þriggja leikja bann en Liverpool menn vonast til að fá spjaldið fellt niður.

,,Það verður mikill missir fyrir okkur ef hann verður úrskurðaður í leikbann. Cole var alveg eyðilagður enda að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið í deildinni fyrir framan frábæra stuðningsmenn okkar,“ sagði Roy Hodgson knattspyrnustjóri Liverpool.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert