Bæði Liverpool og Barcelona hafa staðfest að félögin hafi náð samkomulagi um kaupverð á Javier Mascherano, landsliðsfyrirliða Argentínu í knattspyrnu, og Barcelona hefur nú leyfi til að ræða við hann um kaup og kjör.
Þetta kemur fram á vefjum beggja félaga, og jafnframt að Mascherano verði boðinn fjögurra ára samningur hjá katalónska stórveldinu. Á vef Barcelona er sagt að vonast sé til að Mascherano komi til félagsins til viðræðna um helgina.