Hvít-Rússinn Aliaksandr Hleb hefur upplýst að hann hafi hafnað tilboðum frá Liverpool og Tottenham en miðvallarleikmaðurinn ákvað í gær að ganga í raðir Birmingham. Hann verður í láni frá Barcelona hjá enska úrvalsdeildarliðinu út tímabilið.
,,Það voru mörg tilboð og til að mynda frá Liverpool, Tottenham og Benfica. En það var nauðsynlegt að íhuga möguleikana vel og það kom í ljós að það var mestur vilji hjá Birmingham að fá mig svo ég valdi að fara þangað,“ segir Hleb við hvít-rússneska blaðið Pressball.