Steven Gerrard fyrirliði Liverpool fagnar komu Gerard Houllier í ensku knattspyrnuna á nýjan leik en þessi fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool er tekinn við stjórastarfinu hjá Aston Villa.
Gerrard lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool undir stjórn Houlliers fyrir áratug síðan en Frakkinn var við stjórnvölinn hjá Liverpool í sex ár.
,,Ég hef enn heilmikil samskipti við Gerard. Hann veitti mér tækifæri hjá toppliði og ég hef lært heilmikið af honum. Aston Villa hefur fengið til sín mjög góðan knattspyrnustjóra og ég er ekki undrandi að Gerard sé kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.
Ég veit hversu mikið hann elskar fótboltann. Ég held að hann eigi eftir að láta mikið til sín taka hjá Aston Villa og það kom mér alls ekki á óvart að forráðamenn Villa settu sig í samband við hann því hann er topp knattspyrnustjóri,“ segir Gerrard.