Rio Ferdinand miðvörðurinn öflugi í liði Manchester United verður í leikmannahópi liðsins á morgun þegar það mætir Everton í ensku úrvalsdeildinni í Goodison Park.
Ferdinand hefur verið frá keppni síðan hann meiddist á hné rétt fyrir HM í Suður-Afríku í sumar sem varð til þess að hann lék ekki með Englendingum á HM.
,,Ferdinandi verður í hópum. Það eru þrír leikir hjá liðinu á sjö dögum og því er gott að fá hann aftur inn í hópinn,“ sagði Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United við fréttamenn í dag.