Bobby Zamora framherjinn snjalli í liði Fulham fótbrotnaði í dag í sigri Fulham gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Zamora lenti í harðri tæklingu við Karl Henry og var borinn af velli og fluttur beint á sjúkrahús. Reiknað er með því að Zamora verði frá keppni í allt að fjóra mánuði.