Eiður Smári Guðjohnsen hefur leik á bekknum í liði Stoke í kvöld en liðið tekur á móti Aston Villa í lokaleik fjórðu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Nýju mennirnir Eiður Smári og Jarmaine Pennant hefja báðir leik á bekknum en Marc Wilson, sem gekk í raðir Stoke um mánaðarmótin eins og þeir Eiður og Pennant, er í byrjunarliðinu.
Fram kemur á vef Stoke að knattspyrnustjórinn Tony Pulis muni ekki stýra liði sínu í kvöld vegna ástvinamissis og það kemur í hlut Dave Kemp aðstoðarmanns hans að stjórna liðinu.