Rooney í góðum gír

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. Reuters

Wayne Rooney var mættur á æfingu Manchester United í morgun og allar líkur eru á að hann verði í liðinu sem tekur á móti Rangers í Meistaradeildinni annað kvöld.

Rooney var ekki í leikmannahópi United í leiknum á móti Everton á laugardaginn. Sir Alex Ferguson sagðist ekki hafa viljað láta Rooney taka á móti svívirðingum stuðningsmanna Everton en aðrir eru þeirrar skoðunar að Ferguson hafi verið að refsa Rooney fyrir glapparskotin utan vallar.

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Rooney hafi verið í góðu skapi á síðustu æfingu liðsins fyrir leikinn á móti Rangers. Hann hafi hlegið með samherjum sínum en sem kunnugt er hefur mikið gengið á í einkalífi leikmannsins og hjónaband talið hanga á bláðþræði.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert