Framtíð Wayne Rooney hjá Manchester United er í talsverðri óvissu en enskir fjölmiðlar eru í dag uppfullir af fréttum um að framherjinn hafi tekið þá ákvörðun að róa á önnur mið og fari jafnvel frá liðinu nú strax í janúar. Í skoðanakönnum á vef Sky eru þó flestir þeirrar skoðunar að Rooney verði um kyrrt hjá United út tímabilið.
Spurningin sem Sky birtir á vef sínum er á þessa vegu: Hvar mun Rooney spila þegar félagaskiptanum verður lokað í janúar?
33,8% Manchester United
26,6% Real Madrid
17,6% Manchester City
8,6% Önnur lið
5,7% Chelsea
5,6% Barcelona
2,1% Inter Mílanó