Flestir stuðningsmenn Manchester United vilja að José Mourinho taki við knattspyrnustjórastarfinu hjá félaginu þegar Sir Alex Ferguson ákveður að stíga til hliðar.
Í skoðanakönnum sem Sky lét framkvæma á vef sínum sögðust 60% vilja fá Mourinho til að leysa Ferguson af hólmi en sem kunnugt er tók Mourinho við þjálfun spænska liðsins Real Madrid eftir að hafa gert Inter bæði af Ítalíumeisturum og Evrópumeisturum á síðustu leiktíð.
Næstir á eftir Mourinho komu: David Moyes (13%), Martin O'Neill (10%), Steve Bruce (6%), Mark Hughes (6%), Steve McClaren (3%).