Hinn 18 ára gamli Jack Wilshere þykir líklegur til að verða næsta stjarna Englendinga á knattspyrnusviðinu en miðjumaðurinn knái er byrjaður að láta til sín taka með liði Arsenal.
Fram kemur í netúgáfu enska blaðsins Mirror í kvöld að Arsenal sé að undirbúa að bjóða ungstirninu nýjan fimm ára samning sem felur í sér mikla launahækkun. Samkvæmt honum mun Wilshere þrefalda laun sín og fá 50.000 pund á viku sem jafngildir um 9 milljónum íslenskra króna.