Eiður Smári Guðjohnsen er á meðal varamanna Stoke City sem sækir Everton heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag klukkan 14.00.
Kenwyne Jones hefur hrist af sér veikindi og er í fremstu víglínu hjá Stoke. Jermaine Pennent er hinsvegar á bekknum með Eiði, sem og innkastasérfræðingurinn Rory Delap.
Aron Einar Gunnarsson er í liði Coventry sem mætir Sheffield United á útivelli í 1. deildinni.
Heiðar Helguson missir hinsvegar af leik QPR og Burnley í 1. deild vegna meiðsla í öxl.
Brynjar Björn Gunnarsson er ekki með Reading vegna meiðsla en liðið tekur á móti Doncaster í 1. deild. Ívar Ingimarsson er ekki í hópnum hjá Reading.
Hermann Hreiðarsson er á meðal varamanna Portsmouth en liðið tekur á móti Nottingham Forest í 1. deildinni.
Kári Árnason er í liði Plymouth sem sækir Oldham heim í 2. deild.
Jóhannes Karl Guðjónsson er í liði Huddersfield sem tekur á móti Walsall í 2. deild.
Ármann Smári Björnsson er varamaður hjá Hartlepool sem sækir Dagenham & Redbridge heim í 2. deild.