Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan tímann með Huddersfield í kvöld þegar liðið vann góðan útisigur á Sheffield Wednesday, 2:0, í ensku C-deildinni. Jóhannes var harður í horn að taka á miðjunni og nældi sér í gult spjald en Huddersfield er í öðru sæti deildarinnar.
Leik Hartlepool og Notts County var hætt eftir aðeins þriggja mínútna leik en mikið vatnsveður var í Hartlepool og vallaraðstæður afar erfiðar. Ármann Smári Björnsson var á bekknum í liði Hartlepool.