Enska knattspyrnusambandið ætlar ekki að refsa Harry Redknapp knattspyrnustjóra Tottenham vegna ummæla sem hann hafði um dómarann Mark Clattenburg eftir leik sinna manna við Manchester United á laugardaginn.
Redknapp hótaði því í gær að neita fjölmiðlum um viðtöl ef enska knattspyrnusambandið ætlaði að gera eitthvað veður út af ummælunum. Redknapp mun áfram veita fjölmiðlum viðtöl því hann fékk einungis viðvörun og var beðinn um að haga sér vel í framtíðinni.