Eiður Smári Guðjohnsen lék í 90 mínútur með varaliði Stoke í kvöld þegar liðið burstaði Hereford, 5:0. Eiður var ekki á meðal markaskorara hjá Stoke en hann lagði upp eitt af mörkum liðsins.
Eiður Smári hefur ekki fengið að spreyta sig í eina einustu mínútu í fjórum síðustu leikjum Stoke í ensku úrvalsdeildinni en Stoke, sem hefur unnið tvo leiki í röð, sækir nýliða WBA heim um næstu helgi.
Hvort Eiður hafi spilað sig inn í aðalliðið með frammistöðu sinni í kvöld skal ósagt látið en Tony Pulis knattspyrnustjóri Stoke hefur ítrekað sagt að Eiður sé enn ekki kominn í nægilega gott form.