Leik Blackpool og Manchester United frestað

Sir Alex Ferguson.
Sir Alex Ferguson. Reuters

Leik Blackpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram átti að fara á Bloomfield vellinum í Blackpool síðdegis á morgun hefur verið frestað. Völlurinn er frosinn en engar hitalagnir eru í honum og hann því ekki leikfær.

Nokkrum leikjum í 1. deildinni hefur einnig verið frestað sem og fjölmörgum leikjum í neðri deildunum en mikið vetrarríki er á Bretlandseyjum eins og víða í Evrópu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert