Eiður Smári enn úti í kuldanum

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekkert að spreyta sig með Stoke sjöunda leikinn í röð þegar liðið gerði 2:2 jafntefli gegn Wigan á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Stoke er taplaust í fimm leikjum í röð.

Grétar Rafn Steinsson sat allan tímann á varamannabekk Bolton sem tapaði fyrir Manchester City, 1:0. Það var Argentínumaðurinn Carlos Tévez sem skoraði sigurmarkið eftir aðeins fjögurra mínútna leik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert