Nýliðar WBA unnu góðan sigur á Newcastle, 3:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og komust þar með upp í 7. sæti deildarinnar. Peter Odemwingie skoraði tvö marka WBA eftir að Somen Tchoyi hafði skorað fyrsta mark leiksins en Peter Lövenkrands lagaði stöðuna fyrir Newcastle með marki á lokamínútunum.
WBA hefur 22 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Newcastle er í 11. sæti með 19 stig.