Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn Rovers tilkynnti í dag að knattspyrnustjóranum gamalkunna Sam Allardyce hefði verið sagt upp störfum. Það væri vegna framtíðaráforma nýrra eigenda.
Allardyce var sagt upp ásamt aðstoðarmanni sínum, Neil McDonald, en þjálfarinn Steve Kean fyllir í skarð hans tímabundið.
Indverskir eigendur, undir nafni fyrirtækisins Venky Group, keyptu Blackburn fyrir stuttu.