Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal sagði að sínir menn hefðu verið óheppnir að tapa toppslagnum gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld en Kóreumaðurinn Park skoraði eina mark leiksins.
,,Ástæðan fyrir því hversu bæði lið gerðu sig seka um tæknileg mistök í leiknum var slæmur völlur. Það var ákafi í báðum liðum og mér fannst við gefa allt í leikinn en liðin voru vel skipulögð. Við náðum að skapa okkur nokkur færi en ég verð að hrósa vörn Manchester United. Hún var virkilega góð en mér fannst við óheppnir að tapa leiknum,“ sagði Wenger.