Leik Chelsea og Manchester United sem fara átti fram á morgun hefur verið frestað. Ákvörðun þess efnis var tekin fyrir stundu. Þetta var eini stórleikurinn í þessari umferð. Ljóst er að veðrið ætlar að setja stórt strik í reikninginn þessa helgina.
Aðeins fara tveir leikir fram af 6 í dag og enn er óljóst með tvo leiki á morgun. Þá áttu að mætast WBA og Wolves annars vegar og Blackpool og Tottenham hinsvegar.
Leikur Sunderland og Bolton er í gangi þegar þetta er skrifað og enn er ekki búið að fresta leik Blackburn og West Ham sem á að hefjast klukkan 15:00.