Hermann Hreiðarsson verður í byrjunarliði Portsmouth gegn Millwall í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag og er þetta fyrsti leikur hans í byrjunarliði félagsins síðan hann sleit hásin í fæti í leik í úrvalsdeildinni í mars.
Hermann hefur komið inná sem varamaður í nokkrum leikjum Portsmouth síðustu vikurnar en tekur nú stöðu vinstri bakvarðar í stað Greg Halfords sem er í leikbanni í dag.
Leikur Portsmouth og Millwall hefst klukkan 13 og þá byrjar líka viðureign QPR og Swansea á Loftus Road. Heiðar Helguson er í fremstu víglínu hjá QPR í dag.