Enska 1. deildarliðið Sheffield United réð í dag Micky Adams í starf knattspyrnustjóra félagsins. Adams yfirgefur Port Vale og tekur við starfi Gary Speed sem nýlega var ráðinn þjálfari welska landsliðsins.
Liði Sheffield United hefur vegnað fremur illa á leiktíðinni en liðið er í 20. sæti er aðeins tveimur stigum frá fallsæti.