Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham vonast til að gengið verði frá samningi við David Beckham um helgina en hann kæmi þá til Lundúnaliðsins að láni frá LA Galaxy í tvo til mánuði.
,,Félögin eru að ræða saman og það eru góðar líkur á þessu verði. Það á eftir að ganga frá því hversu langur lánssamningurinn verður og síðan eru það bara litlir hlutir sem á eftir að ganga frá,“ segir Redknapp, sem vonast til að Beckham verði á meðal áhorfenda þegar Tottenham mætir Charlton í bikarnum á sunnudaginn.
Fyrsti leikur Beckhams með Tottenham gæti orðið um aðra helgi og það gegn sínum gömlu félögum í Manchester United.