West Ham: Grant verður áfram stjóri

Avram Grant.
Avram Grant. Reuters

West Ham hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að Avram Grant verði áfram við stjórnvölinn hjá félaginu. Margir breskir fjölmiðlar fullyrtu fyrir leik liðsins gegn Arsenal að Grant yrði látinn taka pokann sinn hver sem úrslitin yrðu og Martin O'Neill tæki við en í fjölmiðlum í Bretlandi var greint frá því að O'Neill væri ekki á leið til að taka við starfinu.

Í yfirlýsingunni segir meðal annars; ,,Avram Grant verður áfram knattspyrnustjóri liðsins.Félagið hefur áhuga á leikmönnum sem munu gefa okkur sem bestan möguleika á að halda okkar sæti í úrvalsdeildinni.“





mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert