Íslenska 21-árs landsliðið í knattspyrnu mætir Englendingum í vináttulandsleik mánudaginn 28. mars og verður leikið á Deepdale, heimavelli enska 1. deildarliðsins Preston North End.
Þar með spila strákarnir tvo leiki í lok mars. Þeir mæta Úkraínu í Kiev 24. mars en öll þessi lið, Ísland, Úkraína og England, eru að búa sig undir úrslitakeppni Evrópumótsins í Danmörku í sumar.