Liverpool gengur að óbreyttu frá félagaskiptum Úrúgvæans Luis Suarez á morgun en framherjinn stóðst læknisskoðun í dag og hefur náð samkomulagið félagið um kaup og kjör.
Liverpool greindi frá því á föstudaginn að það hefði náð samkomulagi við hollenska liðið Ajax um kaup á leikmanninn en Liverpool greiðir 26,6 milljónir punda fyrir hann.
Verði gengið frá félagaskiptunum á morgun ætti Suarez að spila sinn fyrsta leik með Liverpool á miðvikudaginn en þá mætir liðið Stoke í úrvalsdeildinni.
Það ætti svo að skýrast á morgun hvort Suarez verði samherji Fernando Torres eða ekki en líklegt þykir að Chelsea geri Liverpool annað tilboð í Spánverjann á lokadegi félagaskiptagluggans.