Eiður Smári Guðjohnsen er í fyrsta sinn í leikmannahópi Fulham þegar liðið sækir Aston Villa heim í dag kl. 15 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Grétar Rafn Steinsson er ekki með Bolton gegn Tottenham vegna meiðsla.
Eiður Smári er einn sjö varamanna Fulham í dag og líklega sá „sóknarsinnaðasti“ ef svo má segja. Andrew Johnson og Moussa Dembele byrja inná í fremstu víglínu liðsins.