Eiður má ekki spila gegn Bolton

Eiður Smári Guðjohnsen spilar ekki í dag.
Eiður Smári Guðjohnsen spilar ekki í dag. Reuters

Ekkert verður af því að Eiður Smári Guðjohnsen leiki með Fulham gegn Bolton í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu klukkan 15 í dag eins og til stóð.

Samkvæmt heimildum mbl.is kom í ljós í morgun að vegna mistaka við félagaskiptin frá Stoke um síðustu mánaðamót hafði ekki verið gengið sérstaklega frá skráningu um að hann væri gjaldgengur með Fulham í bikarkeppninni. Eiður hafði þó ekki komið  við sögu í bikarleikjum Stoke í janúarmánuði.

Þetta hefur greinilega komið öllum hjá Fulham í opna skjöldu því talsvert hefur verið fjallað um Eið síðustu daga og leikinn sem framundan væri hjá honum gegn sínu gamla félagi, Bolton, þar sem hann hóf ferilinn í Englandi árið 1998.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert