Manchester City var ekki í vandræðum með að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu í kvöld. City tók á móta gríska liðinu Aris Saloniki og hafði betur, 3:0, og samanlagt 3:0.
Bosníumaðurinn Edin Dzeko skoraði tvö fyrstu mörkin á 7. og 12. mínútu og Yaya Touré innisiglaði svo sigur City-manna á 75. mínútu.
Manchester City mætir Dynamo Kiev í 16-liða úrslitunum en úkraínska liðið burstaði Besiktas frá Tyrklandi í kvöld, 4:0, og samanlagt 8:1.