Arsene Wenger og lærisveinar hans í liði Arsenal voru niðurbrotnir eftir tapið gegn Birmingham í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í dag en Birmingham fagnaði sigri á Wembley, 2:1.
,,Ég og allir í liðinu erum að vonum mjög vonsvikir. Það tók okkur tíma að komast í gang í leiknum og kannski má kenna þreytu leikmanna um en við höfum spilað mikið að undanförnu. Í seinni hálfleik var leikur liðsins miklu betri en því miður tókst okkur ekki að skora annað markið. Í lokin gerðu við svo okkur seka um mistök,“ sagði Arsene Wenger.