Wenger stjóri mánaðarins

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal var í dag útnefndur stjóri febrúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arsenal var í góðum gír í síðasta mánuði en liðið vann Everton, Woves og Stoke en gerði 4:4 jafntefli við Newcastle eftir að hafa verið 4:0 yfir eftir fyrri hálfleikinn.

Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem Wenger verður fyrir valinu sem stjóri mánaðarins en Arsenal í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Manchester United en á leik til góða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert